Laus staða sálfræðings

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra auglýsir lausa til umsóknar stöðu sálfræðings. Um er að ræða 100% stöðugildi. Á Fjölskyldusviði starfa félagsráðgjafi, þroskaþjálfi, kennsluráðgjafi, íþrótta- og tómstundafulltrúi auk sviðsstjóra.

Verksvið:

Skóla- og félagsþjónusta: ráðgjöf, greining, leiðsögn, einstaklinga og fjölskyldna; barnavernd, teymisviðfangsefni.

Umsækjandi skal hafa starfsbundin réttindi til starfa sem sálfræðingur á Íslandi, hafi til að bera góða samskiptahæfni, ríkt frumkvæði og samstarfsvilja til þverfaglegs samstarfs.

Sálfræðingi verður tryggð utanaðkomandi handleiðsla og endurmenntun sem þörf er á.

Laun eru greidd skv. samningum Sálfræðingafélagsins og sveitarfélaganna auk viðbótarkjara handa einstaklingi sem hentar vel í starfið.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Frekari upplýsingar veitir Eydís Aðalbjörnsdóttir sviðsstjóri Fjölskyldusviðs s. 4552400 s. 8451345. Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf og umsagnaraðila berist Fjölskyldusviði Húnaþings vestra, Hvammstangabraut 5 530 Hvammstanga eða á netfangið eydis@hunathing.is.

Umsóknarfrestur er til 22. júlí nk.

Húnaþing.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir