Lausn fundin í geymslumálum Byggðasafnsins

Í bili tvö og þrjú frá vinstri voru geymslur Byggðasafnsins áætlaðar. Leikfélagið er nú komið í bil þrjú sem er við hlið Áka bifreiðaþjónustu þar sem dyrnar standa opnar. Mynd: PF.
Í bili tvö og þrjú frá vinstri voru geymslur Byggðasafnsins áætlaðar. Leikfélagið er nú komið í bil þrjú sem er við hlið Áka bifreiðaþjónustu þar sem dyrnar standa opnar. Mynd: PF.

Nú fer að sjá fyrir endann á óvissu geymsluhúsnæðis sem ætlað er tímabundið undir gripi Byggðasafns Skagafjarðar. Eins og Feykir greindi frá í október kom babb í bátinn með húsnæðið þar sem Safnaráð gerði athugasemd hvað varðar eldvarnir, mögulegt vatnstjón og mengunarhættu, einkum vegna bifreiðaverkstæðis sem staðsett var við hliðina á varðveislurýminu.

Leitað var að viðeigandi lausn og varð niðurstaðan sú að skipt var um húsnæði við Leikfélag Sauðárkróks, sem var með bil á öðrum stað í byggingunni. Að sögn Gunnsteins Björnssonar, formanns atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Svf. Skagafjarðar, hefur Safnaráð samþykkt húsnæðið með nokkrum skilyrðum. „Þar er veigamest að skipti hafa orðið við Leikfélagið á bilum. Síðan varðandi brunavarnir og viðvörunarkerfi í húsnæðinu, sem hvort sem er var gert ráð fyrir að setja upp, mun nú ná til alls hússins,“ segir Gunnsteinn sem telur þetta ásættanlega lausn fyrir alla aðila.

Geymsluhúsnæðið er hugsuð sem tímabundin lausn þar sem Byggðasafninu er ætlað pláss í fyrirhuguðu menningarhúsi sem reisa á við Safnahúsið á Flæðum. Gunnsteinn segir að þarfagreiningarhópur hússins muni ljúka sinni vinnu á næstu vikum, annars sé vinna við hönnun hússins á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.  

Tengd frétt: Bifreiðaverkstæði setur strik í reikninginn með geymslurými Byggðasafns Skagfirðinga

Fleiri fréttir