Laust starf aðstoðarleikskólastjóra á leikskólanum Ársölum

Leikskólinn Ársalir auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í 100% starf frá og með 1.sept.2013.

Starfsvið:
• Aðstoðarleikskólastjóri er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri og faglegu starfi leikskólans.
• Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
• Sinnir þeim verkefnum er varða stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari
  • Mikil samskiptahæfni og hæfileiki til að miðla í erfiðum málum
  • Frumkvæði, áræðni og jákvæðni
  • Hæfni til að taka erfiðar ákvarðanir og fylgja þeim eftir
  • Hæfni til að vinna náið með öðrum að breytingastjórnun innan leikskólans
  • Kunnátta í bókhaldi og tölvuvinnslu

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri;  Anna Jóna Guðmundsdóttir í síma 899 1593.

Leikskólinn Ársalir er átta deilda leikskóli með 155 börnum á aldrinum 1-6 ára.

Umsóknarfrestur er til  mánudagsins 1.júlí n.k.

Skila skal rafrænum umsóknum, helst í íbúagátt sveitarfélagsins eða hér á heimasíðu sveitarfélagsins.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélagið Skagafjörður segir frá þessu.

Fleiri fréttir