Laust starf - deildarstjóri Árvistar
Deildarstjóri Árvistar stýrir daglegu starfi í Árvist sem er heilsdagsskóli Árskóla. Um er að ræða 60-70 % starf seinni hluta dags. Ráðning er til eins árs þar sem fyrirsjáanlegar eru breytingar á starfsemi Árvistar.
Umsækjendur þurfa að hafa kennaramenntun eða sambærilega menntun, góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af stjórnun æskileg. Launakjör skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Starfið eru laust frá 1. ágúst 2013. Umsóknarfrestur er til 19. júlí 2013 og sótt er um á vefnum skagafjordur.is.
Upplýsingar um störfin gefur Óskar G. Björnsson skólastjóri Árskóla, s: 822-1141. Skagafjörður.is segir frá þessu.