Leikskólinn Ársalir vinnur með dygðir
Börnin í leikskólanum Ársölum á Sauðárkróki hafa verið að vinna markvist með dygðir á haustönn. Dygðin sem tekin var fyrir er vinsemd og hún fléttuð inn í allt starfið með börnunum hvort sem er í samveru, fín- og grófhreyfingum, málörvun, söng, vinnubók og myndlist. Skólahópurinn í Skógum bjó til vinatré sem þau útbjuggu ásamt kennurum sínum.
Feykir fékk bréf frá krökkunum en þar segir: -Búin voru til laufblöð úr mósaíkmálningu, laufblöð fengin úr náttúrunni ásamt greinum og könglum svo ekki sé nú minnst á stofninn sem er jú tákn okkar fullorðnu að vera góð fyrirmynd svo greinarnar geti vaxið og dafnað eins og börnin okkar. Tréð er túlkun okkar á vinsemd og hjálpartæki til að skapa umræður um vinsemd. Ef tréð dafnar og við hugsum um það bætum á það og til dæmis skreytum pínulítið er hægt að samsama það því hvernig við komum fram hvert við annað og sýnum hvert öðru vináttu. Með vinarkveðju.