LEIKUR SUMARSINS Í KVÖLD – GEFUR TILEFNI TIL HÁSTAFA – ALLIR Á VÖLLINN
Strákarnir okkar í öðrum flokki hjá Tindastól/Hvöt í knattspyrnu undirbúa sig í dag undir stórleik sumarsins er þeir mæta sterku liði Breiðabliks á Sauðárkróksvell í átta liða úrslitum bikarkeppni. Strákarnir eru klárir í bátana og rúmlega það en treysta á að áhorfendur troðfylli stúku og brekkur og hrópi allir sem einn áfram Tinstastóll/Hvöt því í dag kemur ekkert annað en sigur til greina. Við hér á Feyki segjum áfram strákar og getum ekki beðið eftir að skrifa sigurfréttina.
ALLIR Á VÖLLINN