Leikur Tindastóls gegn Grindavík fer fram annað kvöld
Leikur Tindastóls og Grindavíkur í Express-deildinni í körfubolta sem fram átti að fara á föstudag hefur verið flýtt til fimmtudags 9. febrúar. Er þetta gert vegna jarðafarar í Grindavík á föstudag.
Grindvíkingar tróna nú á toppi deildarinnar með 26 stig en Tindastóll situr í 7.-10. sæti með 12 stig. Með þeim mikla stíganda sem verið hefur í Tindastólsliðinu og góðum stuðningi áhorfenda má gera ráð fyrir hörkuleik í Síkinu annað kvöld og allir hvattir til að mæta.
Leikurinn hefst kl. 19.15.