Leikur Tindastóls og Hattar fer fram í dag

Meistaraflokkur Tindastóls í körfuknattleik leikur við Hött á Egilsstöðum í dag kl. 18:30. Leikurinn átti upprunalega að fara fram í gær en var frestað vegna þess að flug sem dómarar leiksins áttu að koma með frá Reykjavík til Egilsstaða var frestað.

Hrakningasaga meistaraflokks og 11. flokks drengja er rakin á heimasíðu Tindastóls en þar kemur fram að það hefur gengið á ýmsu hjá leikmönnunum.

„Eftir að vera búnir að berjast landleiðina austur á Egilsstaði á rútu og minibus eftir rúma 7 tíma keyrslu var leiknum sem mfl karla átti að spila frestað. Í fyrsta lagi var leiknum hjá 11. flokki flýtt á leiktíma mflkarla og unnu strákarnir 6 sem fóru öruggann sigur á lagarfljótsdrengjunum 49-64,“ segir á heimasíðunni.

Sem fyrr segir fer viðureign Tindastóls og Hattar fram kl. 18:30 en ekki var hægt að koma honum fyrr á dagskrá vegna Frjálsíþróttamóts sem er á Egilsstöðum í dag.

Leik 11. flokks og Snæfells sem átti að fara fram á Sauðárkróki í dag hefur verið frestað, sömu sögu er að segja um leik drengjaflokks við KR á morgun.

Fleiri fréttir