Líf og fjör á kaffistofunni af tilefni Betri stofunnar

Líf og fjör var í sjúkrahúsinu á Hvammstanga sl. föstudag en þá var kaffihús opið í tilefni endurbættrar aðstöðu til ýmiss félagsstarfs með tilkomu Betri stofu og smiðju. Betri stofan kemur til með að vera notuð fyrir íbúa sjúkrahússins, gesti og dagþjónustuna. Sesselja Kristín Eggertsdóttir segir í samtali við Norðanátt.is að margar hugmyndir koma upp í kollinn með nýtingu Betri stofunnar. Til dæmis gæti hún verið nýtt til þemavinnu, fyrir konu- og karlaklúbba, fyrir gesti til að koma og ræða við íbúana og margt fleira.

„Markmiðið er að fá fólk utanað til að koma inn á sjúkrahúsið. Ef þú færð gesti, þá geturðu boðið þeim þarna inn.“ Þá er smíðastofan líka ný af nálinni. Hún verður opin oftast virka daga eftir hádegi og það sama er að segja um föndurstofuna. Morgnarnir í dagþjónustunni eru nýttir í hreyfingu.

Kaffihúsið var vel sótt í sl. föstudag og kom það Sesselju Kristínu skemmtilega á óvart. Þar hljómaði afmælissöngurinn á kaffihúsinu og í Betri stofunni en þær systur Þóra Eggertsdóttir (86 ára) og Elsa Eggertsdóttir (88 ára) fögnuðu afmæli sínu í góðra vina hópi í vöfflukaffi.

Til stendur að hafa kaffihúsið opið annars slagið í framhaldinu og mun það verða auglýst sérstaklega. Markmiðið er sem áður að fá fólk til að kíkja inn á sjúkrahúsið. „Hér eru allir velkomnir og fólkinu sem býr hér finnst voða gaman að fá fólk í heimsókn,“ segir Sesselja Kristín og bætir við að íbúum sjúkrahússins hefur gaman að fá frásagnir af því sem er að gerast utan sjúkrahússins. Hún segir það ekki nauðsynlegt að eiga skyldmenni á sjúkrahúsinu til að kíkja inn. „Það eru allir velkomnir, ungir sem aldnir.“

Á heimasíðu Norðanáttar má skoða nokkrar myndir frá deginum.

 

Fleiri fréttir