Lífsins gæði og gleði um helgina

Sýningin Lífsins gæði gleði verður haldin í þriðja sinn um helgina. Fer hún fram í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki og verður opin á morgun laugardag frá kl. 10-17 og á sunnudag kl. 10-16. Þátttakendur eru nú í óða önn að koma sér fyrir á sýningunni og verður opið í Íþróttahúsinu til kl. 19 í kvöld og frá kl. 9 í fyrramálið til þess.

Það er Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði sem hefur haft veg og vanda að undirbúningnum, ásamt þeim Ingunni Ástu Jónsdóttur og Sólveigu Olgu Sigurðardóttur sem starfa fyrir SSNV.

„Undirbúningur hefur gengið með ágætum. Við gerðum litla skoðanakönnun í lok síðasta árs meðal þátttakenda á síðustu sýningu og niðurstaða hennar var sú að flestir vildu hafa sýningarnar á tveggja ára fresti,“ sagði Sigfús í samtali við Feyki á dögunum.

Meðal nýrra þátttakenda eru Mótun plastbátafyrirtæki, Urðarköttur sem framleiðir m.a. græðandi smyrsl úr minkafitu og allmargir frumkvöðlar sem eru að framleiða fjölbreyttar hönnunarvörur.

Heilt yfir segir Sigfús Ingi sýninguna verða með svipuðum hætti og áður, fjölbreytnin sé í fyrirrúmi enda fyrirtækjaflóran á svæðinu ótrúlega fjölbreytt, sem hafi komið bæði heimamönnum og aðkomufólki á óvart á fyrri sýningum.

Samhliða sýningunni fara líkt og áður fram málstofur um fjölbreytt málefni. Má þar m.a. nefna málstofur um rannsóknir og nýsköpun, skapandi greinar, þýðingu héraðsfréttamiðla fyrir landsbyggðina, landbúnað, ferðaþjónustu, umhverfismál og fleira.

Að auki verður svið í sýningarsalnum og þar verður sýningin sett á laugardeginum og Sæluvika Skagfirðinga á sunnudeginum. Þar verða jafnframt fjölmörg önnur atriði, m.a. tónlistaratriði og tískusýningar.

„Ávinningur þessarar sýningar fyrir sveitarfélagið er kannski fyrst og fremst sá að sýningin er risastór markaðssetning á Skagafirði og því helsta sem hann hefur upp á að bjóða,“ sagði Sigfús Ingi í samtali við Feyki.

Fleiri fréttir