Lionsmenn heimsækja HVE á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
24.02.2014
kl. 12.48
Föstudaginn 14. febrúar s.l. komu félagar í Lionsklúbbnum Bjarma á Hvammstanga færandi hendi á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Erindi Lionsmanna var að færa stofnuninni að gjöf tvö 32 tommu sjónvarpstæki til afnota fyrir vistmenn á sjúkra- og öldrunardeild.
Formaður Bjarma, Magnús Magnússon, afhenti gjöfina fyrir hönd Lionamanna og ávarpaði viðstadda. Guðmundur Haukur Sigurðsson veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd stofnunarinnar og þakkaði hlýhug og rausnarskap Lionsmanna.
Nokkrir Lionsmenn skemmtu síðan vistmönnum með gamansögum af mönnum og málefnum einkum úr héraði í um klukkustund. Að lokum drukku Lionsmenn kaffi með vistmönnum.
Fréttatilkynning