Listaflóð á vígaslóð
Menningarhátíðin Listaflóð á vígaslóð verður haldin á Syðstu-Grund í Skagafirði og næsta nágrenni á föstudag og laugardag. Hátíðin hefst með tónleikum í Miklabæjarkirkju um hádegi á föstudag.
Um kvöldið verður svo kvöldvaka í Kakalaskála, þar sem sagðar verða draugasögur, ævintýri Sölmundar sýnd í máli og myndum, Jón Þorsteinn leikur á harmónikku og Gæðingur kynnir bjórinn sinn.
Á laugardaginn er svo fjölskylduhátíð heima á Syðstu-Grund. Hún hefst klukkan eitt með göngu um hinn forna vígvöll á Haugsnesgrundum undir leiðsögn Sigurðar Hansen. Klukkan tvö hefst svo fjölskylduhátíð sem kallast „Sunnan við garðinn hennar mömmu.“ Þar er boðið upp á handverk og hugverk, fjölskylduleiki. Lillu-kaffi og stórtónleika.
Þeir sem fram koma eru Hinrik og húsdýrin, Árni Geir Sigurbjörnsson tenór, Ásgeir Eiríksson bassi, Gillon, Karlakórinn Brandur Kolbeinsson, Jón Þorsteinn Reynisson og Steini í Dúmbó.
Það er Grundarhópurinn sem stendur að hátíðinni og er hún styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.