Ljós og náttúra Norðurlands vestra
Önnur ljósmyndabók eftir Jón R. Hilmarsson er væntanleg á markað í byrjun desember en hann gaf út ljósmyndabókina “Ljós og náttúra Skagafjarðar” árið 2011. Bókin fékk góð viðbrögð fyrir efnistök og gæði og er sú nýja rökrétt framhald af þeirri bók. Sjóndeildarhringurinn hefur stækkað og núna er það Norðurland vestra sem tekið er fyrir.
Ljós og náttúra Norðurlands vestra er viðleitni höfundar að draga fram áhugavert landslag, náttúru , ýmis kennileiti og örnefni landshlutans. Oft er myndað í ljósaskiptunum en þá gerast oft ótrúlegir hlutir í náttúrunni sem gefur myndunum fjölbreyttari umgjörð og litskrúðugri en venjulega.
Bókin hefur að geyma 121 mynd af Norðurlandi vestra en hún hefur verið í vinnslu síðustu þrjú árin. Jón bjó í Skagafirði fram á mitt ár 2012 og var því yfirleitt ekki um langan veg að fara til að afla myndefnis í bókina. Myndir í bókina voru teknar á öllum tímum dagsins, öllum árstíðum, af landi og úr lofti.