Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar á laugardaginn

Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar fer fram í Þytsheimum á laugardaginn. Keppt verður í tölti, í 1. og 2. flokki í tölti T3 og í unglingaflokki og 3. flokki í tölti T7. Mótið hefst kl. 14:00 en skráningum lýkur á miðnætti í kvöld, miðvikudagskvöldið 2. apríl. Skráning er á netfanginu thytur1@gmail.com.

Vegna erfiðra aðstæðna verður ekki keppt í skeiði á lokamótinu. Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri. SKVH er aðalstyrktaraðili Húnvetnsku liðakeppninnar.

Fleiri fréttir