Lokun vegar í austanverðum Skagafirði vegna vatnavaxta
feykir.is
Skagafjörður
07.04.2026
kl. 16.31
Veginum var lokað fyrr í dag og óvíst hvenær hann verður opnaður. Hægt er að fylgjast með á umferdin.is. SKJÁSKOT
Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á lokun vegar frá Sauðárkróksbraut að Norðurlandsvegi að austanverðu í Skagafirði vegna vatnavaxta.
Vegagerðin er við vinnu á vettvangi. Öll umferð er bönnuð.
Hitinn á Norðurlandi vestra er almennt um 6-8 gráður og snjóinn sem féll í síðustu viku tekur því hratt upp með tilheyrandi leysingum.
