Lóuþrælar heimsækja Eyfirðinga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
13.03.2013
kl. 08.14
Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi vestra efnir til söngs í Félagsheimilinu Laugaborg í Eyjafirði laugardaginn 16. mars kl. 15:00. Sönginn nefna kórfélagar “Vorvindar“ og er þar að finna íslensk og erlend lög, sem flutt eru við undirleik hljómsveitar.
„Ánægja okkar og ykkar verður því meiri sem fleiri mæta. Hittumst hress og kát,“ segir í tilkynningu frá kórnum.