Luttman til liðs við Stólana

Karfan.is segir frá því að Tindastóll hefur bætt við sig þriðja erlenda leikmanninum. Sá er 210 sm breskur miðherji, Myles Luttman að nafni, en kappinn kemur til landsins frá Bandaríkjunum þar sem hann var í skóla.

Fyrir eru hjá Stólunum þeir Maurice Miller og Curtis Allen en sá síðarnefndi kom til liðsins þegar Trey Hampton var sagt upp störfum.

Í samtali við Karfan.is segir Bárður Eyþórsson þjálfari Tindastóls: „Það á eftir að koma í ljós hvernig hann fellur inn í þetta hjá okkur en liðið byrjaði tímabilið ekki eins og það ætlaði sér en í dag erum við ánægðir með stöðuna eftir að hafa komið vel til baka. Við vitum vel að við erum ekki að spila okkar besta leik ennþá og finnum að við eigum nóg inni og okkur líður vel með það,“ sagði Bárður og bætti við að hann væri ánægður með stöðugleikann sem Tindastólsliðið hefði komið í varnarleik sinn.

Sjá nánar á karfan.is >

Fleiri fréttir