Lygamælir?
Það haustar. Í morgun sýndi hitamælirinn í bíl Herra Hundfúls 0 gráður. Ekki þurfti hann þó að skafa rúðurnar sem mögulega hefði alveg farið með daginn. Þegar hann fór úr vinnu fyrir hádegi sýndi mælirinn 18 gráður en þegar hann kom heim til sín var hitinn 9 gráður.
Kannski er þetta ekki hitamælir sem er í bílnum heldur lygamælir? Eða er mælirinn kannski bara fullur?
Fleiri fréttir
-
Kvennasveit GSS mætt á Íslandsmót golfklúbba
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna hófst í dag, 13. ágúst, og fer fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Mótinu lýkur 15. ágúst. Átta af sterkustu golfklúbbum landsins taka þátt í mótinu í ár og er Golfklúbbur Skagafjarðar einn af þeim.Meira -
Atvinnulífssýning Skagafjarðar – skráning hafin
Atvinnulífssýning Skagafjarðar verður haldin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki helgina 19.–20. september nk. Sem fyrr er sýningunni ætlað að varpa ljósi á þann fjölbreytileika sem er í þjónustu, framleiðslu, mannlífi og menningu í sveitarfélaginu ásamt því að vekja jákvæða athygli á samfélaginu.Meira -
Rabb-a-babb 251: Gunnar Ásgríms
Það er Gunnar Ásgrímsson frá Sauðárkróki sem svarar Rabbinu í þetta skiptið. Hann er fæddur aldamótaárið 2000, sonur Gurru og Ása (Guðrúnar Sighvatsdóttur og Ásgríms Sigurbjörnssonar), býr í Reykjavík sem stendur og segist vera barnlaus einhleypingur. Gunnar var að útskrifast sem stærðfræðikennari frá HÍ og vinnur nú í Háteigsskóla í Reykjavík. Sumrinu segist hann helst ætla að eyða í að ferðast og vinna með ungliðum í xNei fyrir atkvæðagreiðsluna í ágúst.Meira -
„Þúsund þorskar á færibandinu þokast nær.“ | Óli Rúnar Ástþórsson skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 13.08.2026 kl. 09.00 hinrik@feykir.isSvo söng þjóðskáldið í eyru okkar sem ung unnum í „vinnslunni“ og horfðumst í augu við þann gula í flökuninni. En undanfarin ár hefur færibandið snúið í hina áttina og textinn ætti betur við líðandi stund sem: „Þúsund þorskar á færibandinu þokast fjær!“. Ástæðan er ekki minni afli eða færri fiskar, heldur aðstæður okkar út í hinum stóra heimi. Tollar ESB á unnar vörur hindra okkur í að vinnan allan bolfisk, þ.m.t. lax, í neytendaumbúðir hér heima. Það er vitað mál að aldrei verður hægt að vinna hér nema hluta aflans inn á ferska markaðinn í Evrópu.Meira -
Niðurstaða Selatalningarinnar miklu er áhyggjuefni
Mánudaginn 27. júlí fór Selatalningin mikla fram á Vatnsnesi í 16. skipti á vegum Selaseturs Íslands. Alls tóku 43 manns þátt í talningunni. í tilkynningu á vef Selasetursins segir að í fyrrasumar varð 19% fækkun sela miða við talninguna árin tvö á undan. Vonast var til að um frávik væri að ræða og því varð niðurstaðan úr talningunni nú í júlí talsverð vonbrigði því fjöldinn stóð nánast í stað frá í fyrra, 441 selur talinn.Meira
