Mál vegna mannsláts fellt niður

Ekki verður gefin út ákæra vegna mannsláts sem varð á Hvammstanga í júní á síðasta ári. Mbl.is greinir frá þessu en samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkissaksóknara leiddi rannsókn málsins ekki í ljós að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Málið hefur því verið fellt niður.

Í frétt Mbl.is segir að fjölmargir hafi verið yfirheyrðir vegna málsins og fjórir loks handteknir. Þeir voru síðar úrskurðaðir í gæsluvarðhald en tveimur sleppt nokkrum dögum síðar. Hinum mönnunum var jafnframt sleppt síðar í sama mánuði en þeim var gert að sæta farbanni þar til í lok september.

Rannsókn málsins lauk í nóvember sl. og þá var málið sent til embættis Ríkissaksóknara. Sem fyrr segir leiddi rannsóknin ekki ljós að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og hefur því verið fellt niður.

Maðurinn sem lést hlaut þungt höfuðhögg með þeim afleiðingum að höfuðkúpan brotnaði og blæddi inn á heilann. Hann hét Tomasz Grzegorz Krzeczkowski og var 35 ára gamall þegar hann lést. Hann var til heimilis á Hvammstanga.

Fleiri fréttir