Málefni byggingarfulltrúa til umræðu

Byggðarráð Húnaþings Vestra mun gera tímabundið frávik á skipuriti og fresta ráðningu sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. Þetta var ákveðið á fundi byggðaráðs sem var haldinn mánudaginn 4. maí sl. þegar málefni byggingarfulltrúa voru rædd.  

Byggingarfulltrúi verður ráðinn í fullt starf á sviðið og mun sveitastjóri auglýsa starfið. Samkvæmt fundargerð er stefnt að því að taka ákvörðun fyrir árslok 2015 um hvort varanleg breyting verði gerð á skipuriti Húnaþings Vestra eða hvort ráðinn verði nýr sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Fleiri fréttir