Málþing um Sturlungu í Kakalaskála Skagafirði

Laugardaginn 7. september verður málþing í Kakalaskála í Skagafirði sem ber yfirskriftina „til fundar við Ásbirninga“. Það eru héraðsbókasafn Skagfirðinga, félagið á Sturlungaslóð og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum sem standa að þinginu.

Framsöguerindi flytja Einar Kárason rithöfundur, Ármann Jakobsson prófessor, Guðrún Nordal forstöðumaður Árnastofnunar, Helgi Þorláksson prófessor, Sigurður Hansen Kakalaskálastjóri og Úlfar Bragason rannsóknarprófessor. Guðrún Ingólfsdóttir bókmenntafræðingur stýrir þinginu sem hefst kl 13 og er aðgangseyrir 1.000 kr.

Fréttatilkynning

Fleiri fréttir