Mánaðarlegir fræðslufundir í Auðunarstofu
Í vetur verða mánaðarlegir fræðafundir í Auðunarstofu á Hólum í Hjaltadal. Um er að ræða verkefni sem Guðbrandsstofnun stendur að og býður húna fræðafólki að dvelja á Hólum í vikutíma og halda erindi um hugðarefni sín á dvalartímanum. Verkefnið er styrkt af Menningarsjóði Norðurlands vestra.
Fyrsti fræðafundurinn á Hólum verður í Auðunarstofu laugardaginn 19. október kl. 16:00. Þá verður Guðrún Bjarnadóttir - Hadda með erindi um VEFNAÐ. Í vetur hafa þessir fræðimenn/konur þegið boð um að dvelja á Hólum:
> Guðrún Bjarnadóttir - Hadda fyrirlestur í Auðunarstofu 19. október kl. 16:00
> Árelía Eydís Guðmundsdóttir - fyrirlestur í Auðunarstofu 16. nóvember kl. 16:00
> Auður Hildur Hákonardóttir - fyrirlestur í Auðunarstofu 14. desember kl. 16:00
> Sólveig Ólafsdóttir - fyrirlestur í Auðunarstofu 18. janúar kl. 16.00
> Kristbjörg Hjaltadóttir - fyrirlestur í Auðunarstofu 15. febrúar kl. 16:00
> Sr. Gunnar Kristjánsson - fyrirlestur í Auðunarstofu 15. mars kl. 16:00
> Rannveig Ólafsdóttir - fyrirlestur í Auðunarstofu 12. apríl kl. 16:00
Erindin, sem eru öllum opin verða nánar auglýst þegar nær dregur, en fyrsta erindið er eins og áður segir í Auðunarstofu laugardaginn 19. október og hefst kl. 16:00. Kaffiveitingar verða á boðstólum.