Margrét Sól Thorlacius tekur við Bardúsu - Verslunarminjasafni

Í apríl síðastiðnum lét Unnur Haraldsdóttir af störfum sem umsjónarmaður Gallerís Bardúsu og Verslunarminjasafnsins á Hvammstanga. Við því starfi tók Margrét Sól Thorlacius. Sumaropnun Bardúsu hefst í næstu viku en opið verður alla daga kl. 11-16 eftir 19. maí.

Þann 1. júní verður svo opnunartíminn aukinn enn frekar og opið verður frá kl. 10-18 virka daga en kl. 11-16 um helgar. Frá þessu er greint í síðasta tölublaði dagskrárritsins Sjónaukans.

Þeir sem vilja koma munum í sölu í Bardúsu geta frá og með 13. maí haft samband við Margréti í gegnum netfangið solnoi@hotmail.com eða símanúmerið 690-9078.

Fleiri fréttir