Margt að gerast á Laugarbakka
Það er margt um að vera á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í sumar. Grettishátíð er árviss viðburður, Spes sveitamarkaður opnar 17. júní í Grettisbóli, þar sem einnig má skoða listaverkasýningu og Handverkshúsið Langafit hefur stækkað og aukið úrvalið.
Grettisból á Laugarbakka er, ef svo má að orði komast, síðasti áfangastaður Grettis sterka Ásmundssonar, útlagans sem fæddist á Bjargi í Miðfirði árið 996 og lést í Drangey á Skagafirði 39 árum seinna eftir áratuga svaðilför um innan lands sem utan. Í Grettisbóli svífur andi Grettis yfir vötnum. Grettishátíð hefur fest sig í sessi með aflraunakeppni, sögustund og menningarviðburðum, sem á einn eða annan hátt gera Grettissögu góð skil.
Grettisbók er leikvangur og húsnæði í eigu Grettistaks, verkefnis sem stuðlar að sögutengdri ferðaþjónustu. Nánar má fræðast um það á vefsíðu verkefnisins. Þessa dagana standa yfir lagfæringar á Grettisbóli, þar sem meðal annars er verið að setja upp ný salerni. Þá verður söluaðstaðan lagfærð og sölupláss aukið. Einnig er að fara af stað vinna á útivistarsvæði þar sem bætt verður við leiktækjum í anda víkinga og sett upp tjöld . Þá er stefn á aukna stafsemi á útisvæði með starfsmanni og námskeiðum fyrir börn.
Eins og síðustu ár verður Spes-sveitamarkaður rekinn í Grettisbóli í sumar. Markaðurinn opnar 17. júní og stendur fram til 18. ágúst. Opið er alla daga frá kl. 12-18. Handverk og matvæli, framleiðsla bænda og sjómanna er til sölu á markaðnum. Handverkið er sérvalið og vandað. Jurtalitað band, unglambaskinn, áhöld úr horni, hálsmen úr hrosshófum og margt fleira er meðal þess sem þar er til sölu.
Auk þess að vera sölustaður svæðisbundinnar framleiðslu er Grettisból einnig sýningarstaður, en þar er myndasyrpan „Ár og kýr“ eftir Jón Eiríksson, bónda á Búrfelli, til sýnis. Um er að ræða 365 kúamyndir sem Jón útfærði á sinn einstaka hátt. Höfðar sýningin jafnt til ungar sem aldinna.
Á Laugarbakka er einnig rekið handverkshúsið Langafit. Þar er boðið upp á fjölbreytt handverk, kaffi og kökur, ís og töfrandi stemmingu. Umfangsmiklar breytingar hafa verið gerðar á rekstrinum. Staðurinn hefur hækkað og er auk handverks fullur af allskonar skemmtilegum hlutum.
Kennimerkið Gæði úr Húnaþingi - local quality er að líta dagsins ljós. Í rúmt ár var undir stjórn Spes sveitamarkaðar og handleiðslu SSNV atvinnuþróunar unnið að viðmiðum, hönnun merkis o.fl. Haldin var samkeppni um kennimerkið sem Birgir Þór Þorbjörnsson sigraði. Merkið un prýða vörur úr Húnaþingi vestra sem að öllu eða mestu leyti eru unnar í höndum, byggja á hráefni svæðisins þar sem því verður komið við og taka mið af verkþekkingu svæðisins. Grettistak og Langafit eru meðal þeirra aðila sem eiga þátt í þróun merkisins.