María í Kringlumýri opnar vinnustofu sína
María í Kringlumýri ætlar að opna vinnustofu sína næstkomandi sunnudaga fram að jólum, dagana 11. og 18. desember, á milli kl. 13-17.
Að sögn Maríu verður hægt að fá þar ýmislegt jólaheklað, jólasaumað og þæft. „Þar verður hægt að fá allskyns handverk, gamalt og nýtt en einnig verð ég með til sölu fallegu jólakortin hennar Þuríðar Hörpu og nýju bókina hans Jóa í Stapa „Ný axarsköft,“ sagði María.
Allir eru boðnir velkomnir í jólastemningu og rjúkandi kaffisopa.