Maríudagar

Síðustu fjögur ár hefur fjölskylda Maríu Hjaltadóttur frá Hvoli í Vesturhópi heiðrað minningu hennar með listsýningu sem nefnist ,,Maríudagar“. Í ár ætlar fjölskylda hennar enn á ný að efna til ,,Maríudaga“ með sýningu á ýmsum listmunum eftir nokkra listamenn.

Þeir verða þá haldnir í fimmta skiptið og verða dagana 11. og 12. júlí nk., kl. 13-18 báða dagana. Þess má geta að listafólkið verður að störfum á meðan sýningunni stendur. Einnig verður ljósmyndasýning, gamlar myndir af sveitungum í leik og starfi.
Gestum er boðið að þiggja veitingar báða sýningardagana.

Maríu á Hvoli munum við öll,
málandi á striga og kríta,
hæðir og dali og himin og fjöll,
Hér brot af því fáum að líta.
(Gústi)

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir