Mark Magee leikur með Tindastól í sumar
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
09.04.2014
kl. 16.47
Knattspyrnudeild Tindastóls hefur kynnt til leiks nýjan erlendan leikmann sem spilar með liðinu í sumar. Sá heitir Mark Magee og er 24 ára gamall enskur sóknar- og miðvallarleikmaður.
Samkvæmt fréttatilkynningu lék Magee með u16 og u18 ára liðum Bristol City en fór til Bandaríkjanna árið 2010 þar sem hann lék með Rockhurst háskólanum. Magee kemur til Íslands í lok apríl.