Markvert flytur starfsemi sína
Markvert ehf, fyrirtæki sem starfað hefur í Skagafirði, mun flytja starfsemi sína að Öngulsstöðum 1 í Eyjafjarðarsveit frá 1. september n.k. Nýverið keypti Markvert 50% hlut í rekstrarfélagi Lamb Inn, sveitahótels og veitingastaðar á Öngulsstöðum, en frá þessu er sagt á heimasíðu fyrirtækisins.
Síðasta verkefni Markvert í Skagafirði er undirbúningur og framkvæmd Sveitasælu 2013 í reiðhöllinni Svaðastöðum, sem haldin verður laugardaginn 24. ágúst. Markvert hefur einnig verið umboðsaðili Sjóvá í Skagafirði, en Kristín Snorradóttir, sem starfað hefur í umboðinu undanfarið ár, mun taka við sem umboðsaðili frá 1. september n.k.
Markvert mun áfram starfa við viðburðastjórnun og almannatengsl á nýju markaðssvæði, auk þess að hlúa að eignarhlut sínum í rekstarfélagi Lamb Inn.