Meira af svartþröstum

Eins og fram kom hér á vefnum og í nýjasta tölublaði Feykis, hefur svartþröstur nokkur gert sig heimakominn í Óslandshlíð og þá einkum hjá Garðari Páli Jónssyni og fjölskyldu á Melstað. Í framhaldi af þeirri frétt bárust eftir farandi upplýsingar frá Kára Gunnarssyni:

„Svartþrestir sást víðar en hjá Garðar frænda mínum á Melstað og þessa mynd af svartþröstum tók ég í dag (í fyrraedag) í garðinum við Skógarstíg 2 í Varmahlíð. Garðari og lesendum Feykis til fróðleiks eru þarna hjón og á Vísindavef internetsins segir um þessa fugla:

,,Svartþröstur (Turdus merula, e. blackbird) er litlu stærri en skógarþröstur (Turdus illiacus), sú þrastategund sem landsmenn þekkja best. Karlfuglinn er alsvartur með gul-appelsínugulan gogg og áberandi gulan hring í kringum augun en kvenfuglinn er brúnmóleitur með fölgulan gogg. Ungfuglar eru líkir kvenfuglum í útliti. Svartþrestir eru á bilinu 23 – 29 sm á lengd og vega um 125 grömm.“

Þannig að hugmynd Garðars um ólíkindi þess að kvenfuglinn væri óframfærin og feimin, sem hann setti fram af góðu hyggjuviti, er ekki allskostar rétt samkvæmt þessu. Karlfuglinn í mínum garði er mun meira á ferðinni og virðist haldinn sýniþörf og jafnvel athyglissýki, eins ólíkt það er nú jafna karlkyninu,“ segir Kári í tölvuskeyti til Feykis.

Fleiri fréttir