Meistaradeild Norðurlands 2012 af stað
Nú fer KS-deildin í hestaíþróttum að fara af stað enn eitt árið en úrtaka fer fram þann 25. janúar í Svaðastaðahöllinni og hefst kl: 20:00. Keppt verður í í fjór og fimmgangi en alls eru sex sæti laus í keppninni.
Þar sem tveir keppendur hafa afboðað þátttöku vegna flutnings af svæðinu, áskilur stjórn MN sér rétt til að úthluta tveimur sætum til viðbótar ef viðunandi árangur í úrtöku næst.
Skráning er fram fyrir föstudagskvöldið 20. Janúar hjá Eyþóri : 848-2725 og Stefáni : 860-2050
/Stjórn MN