Meleyri hefur rækjuvinnslu á ný

Meleyri á Hvammstanga, ein elsta rækjuverksmiðja landsins, hefur verið opnuð aftur eftir stopula starfsemi undanfarin ár. Nesfiskur í Garði keypti verksmiðjuna, hefur ráðið tólf manns til vinnu og samkvæmt heimildum Ríkisútvarpsins hyggst fyrirtækið senda tvo togara á rækjuveiðar.

Þegar Meleyri var lokað árið 2006 misstu 20 manns vinnuna. Einhver starfsemi hefur verið síðustu árin í verksmiðjunni en mjög lítil síðasta árið. Á Rúv.is segir að ánægja ríki á Hvammstanga með kaupin og eru nokkrar væntingar bundnar við starfsemina.

Til að byrja með verður unnin frosin rækja frá Kanada, en togararnir tveir, Berglín GK 300 og Sóley Sigurjóns GK 200, halda bráðlega á veiðar. Annar þeirra mun landa á Hvammstanga til að byrja með.

Baldvin Þór Bergþórsson, verkefnastjóri hjá Nesfiski, segir í samtali við Ríkisútvarpið að ætlunin sé að vera með starfsemi fyrir 10-15 manns og að útlitið sé gott. Hann vonast til að veiðar gangi vel og haldi framleiðslunni í landi gangandi. Ákveðið hafi verið að prófa þetta svo bátarnir fengju verkefni, því kvóti fyrirtækisins hefði verið skertur.

Fleiri fréttir