Melstaðarkirkju lokað vegna endurbóta

Melstaðarkirkja í Miðfirði hefur verið lokað á meðan á framkvæmdum stendur en verið er m.a. að koma nýja orgelinu fyrir, sem söfnuðurinn gaf til kirkjunnar á dögunum.

Að sögn sr. Guðna Þórs Ólafssonar, prests í Melstaðarkirkju, stendur einnig til að auka rými niðri í kirkjunni með því að taka niður skilrúm beggja vegna altarisins, og þar með flytja skrúðhús og geymslurými í safnaðarheimilið. „Gott pláss verður fyrir kór og organista, og meira rými fyrir ýmsar athafnir eins og fermingar og sérstakan tónlistarflutning,“ sagði Guðni. Einnig voru gerðar tillögur um að breyta svalarými, og er sú breyting er áformuð síðar.

Eftir almennan safnaðarfund ákvað sóknarnefnd að hrinda framkvæmdum af stað og tók smíðafyrirtækið Tveir smiðir að sér framkvæmdina. Arkitekt er Stefán Örn Stefánsson hjá Argos arkitektastofu.

Búist er við að ný og betri kirkja verði notuð við ferminguna, sem verður í kirkjunni 28. apríl. Þangað til fara athafnir fram í Staðarbakkakirkju.

Fleiri fréttir