Menn komu hauslausir, segir Helgi Rafn
Nei þetta var ekki erfiður leikur. Við spiluðum bara eins og fávitar, sagði Helgi Rafn Viggósson leikmaður Tindastóls eftir leik kvöldsins en þar biðu Tindastólsmenn lægri hlut fyrir liði Keflavíkur í Iceland Expressdeildinni á heimavelli 72 - 91. Illa gekk hjá heimamönnum að komast inn í leikinn, hittu illa og margar sendingar fóru forgörðum.
-Menn komu hauslausir, það er bara þannig. Ef menn mæta ekki með rétt hugarfar í leikinn þá fer þetta svona, sagði Helgi er hann var spurður hvað hefði gerst hjá liðinu. –Þetta er svosem bara einn leikur en við erum búnir að vera á ágætis „rönni“ og svo töpum við þessum leik núna en svo er bara að gíra sig upp fyrir næsta leik á fimmtudaginn næsta. Nú hendum við þessum leik aftur fyrir okkur og byrjum upp á nýtt og tökum leikinn á móti Fjölni í Grafarvoginum. Þessi leikur hjá okkur í kvöld var skelfilegur og ég ætla að vona að menn gyrði sig í brók og mæti almennilegir í næsta leik, sagði Helgi svekktur með frammistöðu liðsins.