Messufall vegna veðurs
feykir.is
Skagafjörður
26.12.2013
kl. 19.51
Messufall varð í dag í Ketukirkju á Skaga, vegna veðurs og færðar. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknarprestur í Sauðárkróksprestakalli, lét ágætlega af messusókn í Sauðárkrókskirkju á aðfangadag, þrátt fyrir að veður væri heldur óspennandi. Aðsóknin var hins vega frekar dauf í gær, jóladag, enda hávaðarok og glerhálka.
„Veðrið ræður mjög miklu um messusókn,“ sagði sr. Sigríður í samtali við Feyki.
Sömuleiðis varð messufall í Barðskirkju í Fljótum í dag en Feyki hafa ekki borist fregnir af helgihaldi annars staðar í svæðinu.