Mette Mannseth fyrst kvenna til að verða meistari í FT
Mette Mannseth, reiðkennari á Þúfum í Óslandshlíð i Skagafirði, tók meistarapróf félags tamingamanna í dag og er hún fyrst kvenna til að gera. Prófið fór fram á Hólum í Hjaltadal.
A vefnum hestafréttir.is segir að Mette hafií mörg ár verið til fyrirmyndar sem reiðmaður og reiðkennari og tímabært að hún tækist á við þetta próf, sem er það stærsta og æðsta sem hægt er að öðlast sem tamningamaður og reiðkennari hérlendis.
Fimm knapar höfðu áður hlotið þennan titil en það eru þeir Eyjólfur Ísólfsson, Reynir Aðalsteinsson, Benedikt Líndal, Sigurbjörn Bárðarson og Þórarinn Eymundsson. Eyjólfur og Þórarinn eru einnig búsettir í Skagafirði.