Miðfjarðará í New York Times

Mbl.is segir frá því að  á vef New York Times sé að finna skemmtilega umfjöllun blaðamannsins Peter Kaminsky um veiðiferð sína í Miðfjarðará en hann var við veiðar í ánni í viku nú í sumar. Greinin hefst á þessum lýsandi orðum um umhverfi Miðfjarðarárinnar: „Along this river in Iceland’s cold northwest, the world is reduced to its bare components: rocks, grass, water and fish.“

"Segir Peter frá þeim afgerandi mun á laxveiði á Íslandi og í m.a. Rússlandi og Kanada þar sem hann hefur áður veitt. Þar hafi blasað við honum breið fljót sem kröfðust tvíhendu og góðrar kunnáttu á Spey köstunun. En í Miðfjarðaránni var nett einhenda, flotlína, langur taumur og litlar flugur það sem þurfti."

„Talar blaðamaðurinn einnig um veiða/sleppa stefnuna í Miðfjarðaránni og hvernig hún taki góðan meðalveg. Greinina endar blaðamaðurinn á að segja frá draum sem hafði fylgt honum síðan hann sá heimagert myndband frá Miðfjarðaránni þegar hann var við veiðar í Argentínu fyrir allnokkrum árum síðan. Í myndbandinu stendur veiðimaður við hyl og skyggir hár klettaveggur á hylinn. Fyrir neðan liggur tugur laxa í fylkingu og halda stöðu sinni í straumnum. Veiðimaðurinn kastar á hylinn, einn laxinn fer úr fylkingunni og munnurinn galopinn er hann gleypir fluguna,“ segir á Mbl.is.

Nánar HÉR.

Fleiri fréttir