Mikið um að vera hjá knattspyrnudeild Tindastóls á föstudag
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
30.04.2014
kl. 15.25
Árlegt Sæluvikufótboltamót verður í íþróttahúsinu fyrir yngri flokka félagsins. Mótið hefst kl. 13:00. Samkvæmt fréttatilkynningu hefst skiptimarkaður á fótboltaskóm og íþróttaskóm kl. 14:00 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki.
„Fólk er hvatt til að koma með gömlu skóna til okkar í íþróttahúsið á milli kl. 12:30 og 13:30 og verðleggið þá með okkur (aðeins 4 verð: 500.- 1.000.- 1.500.- 2.000.). Við hvetjum síðan foreldra til að notfæra sér þetta, finna gamla skó sem etv. eru orðnir of litlir og finna sér nýja,“ segir í tilkynningunni.
JAKO verður með sölu á keppnisbúningum Tindastóls og fleiri vörum í íþróttahúsinu á Sauðárkróki frá kl. 14:00
/Fréttatilkynning