Mikið um að vera í Skólabúðunum í Reykjaskóla
Fullbókað er í Skólabúðirnar í Reykjaskóla í Hrútafirði til vors en þar hefur verið mikið líf í vetur. Hver skólinn á fætur öðrum dvelur þar í um vikutíma í senn og krakkarnir reyna nýja hluti í breyttu umhverfi. -Það er mikið mál að koma öllum fyrir og gera öllum til hæfis í þeim efnum og því biðjum við skólastjórnendur að sýna okkur skilning þegar kemur að því að úthluta tímum á næsta skólaári, segir á heimasíðu skólabúðanna.
-Við reynum að verða við óskum sem flestra en það er bara ekki hægt í öllum tilfellum og því gildir gamla lögmálið; fyrstur kemur fyrstur fær, segir á skolabudir.is en í vetur eru nokkrir skólar á biðlista og eru þeir hvattir til að sækja strax um þegar umsóknareyðublöðin berast til þeirra.
Þessa vikuna dveljast nemendur og kennarar Víðistaðaskóla í Skólabúðunum, alls um áttatíu manns. -Ekkert sem bendir til annars en að þetta verði góð og fjörug vika, og munum að sýna hvort öðru vináttu - virðingu og væntumþykju, segir á Fésbókarsíðu skólabúðanna.