Mikil gróska í golfinu á Króknum

Meistaramót barna og unglinga Golfklúbbs Sauðárkróks fór fram dagana 5.-7. júlí s.l. Keppt var í fjórum flokkum og spiluðu allir keppendur 54 holur. Mjög góður árangur náðist í öllum flokkum og flest allir keppendur lækkuðu forgjöf sína töluvert sem sýnir að gróskan í golfinu á Króknum er greinilega að skila sér þessa dagana.

Úrslit urðu eftirfarandi:

  • 12 ára og yngri drengir: Högg

  • 1. William Þór Eðvarðsson     300
  • 2. Sölvi Björnsson      325
  • 3. Hákon Ingi Rafnsson         373

13-14 ára drengir:

  • 1. Elvar Ingi Hjartarson          247
  • 2. Arnar Ólafsson       270
  • 3. Atli Freyr Rafnsson            273

15-18 ára drengir:

  • 1. Arnar Geir Hjartarson        241
  • 2. Ingvi Þór Óskarsson           252
  • 3. Þröstur Kárason      277

Stúlkur

  • 1. Sigríður Eygló Unnarsdóttir          272
  • 2. Aldís Ósk Unnarsdóttir      294
  • 3. Matthildur Kemp Guðnadóttir      304

Fleiri fréttir