Mikill snjór í fjöllum
Eftir snjóþungan vetur og síðbúnar leysingar verður enn einhver bið á því að sláttur hefjist í Fljótum, en mánuður er að verða liðin síðan þeir fyrstu hófu slátt í Húnavatnssýslum og Skagafirði.
„Það eru líklega tvær vikur í slátt hjá flestum, en í venjulegu árferði væru flestir byrjaðir að heyja núna. Snjórinn er að mestu leyti horfinn af láglendi, en það er mjög mikill snjór t.d. í fjöllunum fyrir ofan Brúnastaði og á Lágheiði, jafnvel meira en var eftir snjóaveturinn mikla ´95,“ sagði Halldór Gunnar Hálfdánarson á Molastöðum, þegar Feykir hafði samband við hann í byrjun vikunnar.
Í Vestur-Fljótum voraði heldur fyrr, og að sögn Þorkláks Sigurbjörnssonar í Langhúsum ætlar hann að byrja að slá um leið og styttir upp. Þar, eins og víðast hvar í Skagafirði, rigndi gríðarlega í gærdag.