Módel að skreiðarsetri kynnt

Í morgun kynntu Tómas H. Árdal og Jón Þórisson tillögur að skreiðarsetri í gamla slátursamlagshúsinu við höfnina á Sauðárkróki. Tómas hefur látið hanna og teikna skreiðarsetur og og hugmyndin er að það verði í húsinu, með tengingu við skreiðarhjallana sem þar standa og gott útsýni til Drangeyjar.

Tómas segist vonast til að þessi hugmynd geti orðið að veruleika, en til að forvinna hana naut hann styrkja frá Menningarráði Norðurlands vestra, FiskSeafood og Sölku fiskmiðlun á Dalvík. Fulltrúar þessara aðila og sveitarfélagsins Skagafjarðar voru viðstaddir kynninguna í morgun.

Nánar verður fjallað um verkefnið í næsta Feyki.

Fleiri fréttir