Molduxamótið 2015
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
07.03.2015
kl. 11.34
Ákveðið hefur verið að halda hið árlega Molduxamót fyrir 40 ára og eldri laugardaginn 25 apríl. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu). „Takið þessa helgi frá og mætum öll með góða skapið og keppnisandann í lagi,“ segir fréttatilkynningu frá Molduxum.
„Að sjálfsögðu verður svo kvöldvaka eftir mótið og er rétt að minna á að ef lið eða einstaklingar hafa eitthvað skemmtilegt fram að færa, skemmtiatriði, sögur, brandar, ræður (ekki of langar samt) ,dans, söng , látbragðsleik eða bara eitthvað á kvöldvökunni, þá er það velkomið,“ segir loks í tilkynningunni.