Morgunæfingu í fyrramálið aflýst

Vegna slæms veðurútlits verður morgunæfingu körfuknattleiksdeildar Tindastóls  aflýst í fyrramálið en um er að ræða æfingar sem unglingaráð kom á fót fyrir þá unglinga sem vilja ná enn lengra í íþróttinni. Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun fyrir kvöldið en búist er við stormi á Vestfjörðum síðdegis og um V-vert landið í kvöld og nótt.

Veðurspá:
Vaxandi norðaustanátt með snjókomu, norðan 18-23 m/s síðdegis, en hægari austantil fram á kvöld. Minnkandi norðvestanátt á morgun og dregur úr ofankomu. Vægt frost.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
 Gengur í suðaustan 13-20 m/s og fer að snjóa S- og V-lands, en rigning eða slydda með kvöldinu og hiti 1 til 5 stig. Hægari og úrkomulítið á NA-verðu landinu, frost þar 0 til 10 stig.

Á laugardag:
Suðaustan 8-15 m/s og súld eða rigning, þó síst NA-lands. Hiti 3 til 10 stig.

Á sunnudag:
 S- og SV-átt. Úrkomulítið fyrir norðan, rigning SA-lands fram eftir degi, en skúrir eða él á SV og V-landi. Kólnandi veður.

Á mánudag og þriðjudag:
 Útlit fyrir suðlæga átt og fremur milt veður.

Fleiri fréttir