Mótahald hestamannafélagsins Neista veturinn 2014

Mótanefnd Hestamannafélagsins Neista fundaði á dögunum um mótahald vetrarins sem og framkvæmd þeirra. Önnur mál voru einnig rædd en ýmislegt er í pípunum sem skýrist síðar. Mótin verða eftirfarandi, en miðast þó alltaf við færð og veður.

Ísmótið verður á Hnjúkatjörn þann 01.febrúar 2014. Það mót, er þó öðrum mótum fremur háð veðri og verður fært til ef veður, ísleysi eða annað hamlar þennan dag.

Tölt T7 verður haldið 24. febrúar í Reiðhöllinni.

Fjórgangsmót verður haldið 10. mars í Reiðhöllinni.

Smalinn verður haldið 24. mars í Reiðhöllinni.

Fimmgangur og tölt verður haldið 7. apríl í Reiðhöllinni.

Mótanefnd Neista, á myndina vantar Ólaf Magnússon Sveinsstöðum. Mynd: Neisti.net

Fleiri fréttir