Mótmæla fyrirhuguðum jarðakaupum í Miðfirði

Núpsdalstunga. Mynd: Mats Wibe Lund
Núpsdalstunga. Mynd: Mats Wibe Lund

Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra í síðustu viku var tekin til umfjöllunar beiðni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins vegna kaupa einkahlutafélagsins Flaums á jörðinni Núpsdalstungu í Miðfirði. Flaumur og tengdir aðilar eiga alls 5.548 hektara lands fyrir kaupin en í jarðalögum er kveðið á um ákveðin skilyrði fyrir kaupum á jörð ef kaupandi og tengdir aðilar fara yfir ákveðið hámark í fjölda jarða og hektara. 

Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra var lögð fram eftirfarandi tillaga að bókun sem samþykkt var samhljóða:

„Varðandi kaup á jörðum í sveitarfélaginu Húnaþingi vestra.
Sveitarstjórn vill árétta að það er vilji sveitarstjórnar að jarðir séu seldar til búsetu. Mikilvægt er að tryggja nýtingu á bújörðum og búsetu enda er slík nýting um allt sveitarfélagið lífæð samfélagsins. Sveitarstjórn vill leggja áherslu á að eign jarðar fylgja ekki aðeins réttindi til nýtingar hlunninda viðkomandi jarðar heldur einnig skyldur við jörðina og samfélagið allt. Það er eindreginn vilji sveitarstjórnar að allar jarðir í sveitarfélaginu verði nýttar með það að markmiði að styðja við fjölbreytta atvinnusköpun, eflingu byggðar og styrkingu búsetu. Þar af leiðandi er mikilvægt að ábúð sé á sem flestum jörðum. Sveitarstjórn telur ekki æskilegt að margar jarðir safnist á fárra hendur.
Sveitarstjórn vill jafnframt benda á að engin gögn hafi fylgt beiðni um umsögn frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu varðandi málið í upphafi og málið því verið mjög óljóst þegar það barst sveitarfélaginu. Þurfti sveitarstjórn að kalla sérstaklega eftir gögnum. Eðlilegast hefði verið að viðkomandi fylgigögn hefðu fylgt með beiðni um umsögn strax í upphafi og er mælst til að það verði gert í framtíðinni. Jafnframt er bent á að sveitarstjórn telur eðlilegt að ráðuneytið móti sér hið fyrsta verklagsreglur varðandi framkvæmd laga nr. 81/2004 með síðari breytingum frekar en að leggja þá ábyrgð alfarið á hendur sveitarfélaga, enda virðist það afar misjafnt eftir málaflokkum hverju sveitarfélögum er treyst fyrir. Þá kann að vera eðlilegt að ráðuneytið vinni stutta umsögn um málið með hliðsjón af þeim atriðum sem tíunduð eru í 10. gr. a í jarðalögum áður en það er sent sveitarstjórn til umsagnar. Þá vill sveitarstjórn jafnframt benda á að of stuttur frestur var veittur sveitarfélaginu til að gefa umsögn.“

Félag sauðfjárbænda skorar á ráðherra

Stjórn Félags sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu hefur einnig ályktað um málið og sendi hún frá sér ályktun þar að lútandi. Kemur þar fram hörð gagnrýni á að sami aðili geti safnað að sér ógrynni lands og erfitt sé að skilja hvað einn aðili hafi með svo mikið land að gera. Einnig áréttar stjórnin að í jarðalögum segi að fari jarðakaup yfir ákveðið hámark þurfi að fylgja með rökstuðningur varðandi það hvernig eigi að nytja jörðina. Þó sé ekki að sjá að nein viðurlög séu við því ef kaupandi stendur ekki við nýtingarhugmyndir sínar og því sé þetta ákvæði því hálf litlaust.

Ályktun félagsins hljóðar á þessa leið:

„Stjórn Félags Sauðfjárbænda í V-Húnavatnssýslu tekur undir bókun sveitarstjórnar Húnaþings vestra frá 14.janúar 2021 vegna sölu á jörðinni Núpsdalstungu í Miðfirði, en atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskaði eftir umsögn sveitarfélagsins vegna kaupa Flaums ehf. á jörðinni.

Umræða um jarðasöfnun á fárra hendur á síðustu árum skilaði því loks að alþingi samþykkti síðastliðið sumar breytingu á jarðalögum en þá voru settar reglur um söfnun lands og skyldu eigenda til nýtingar og búsetu á jörðum.

Enn fremur kemur fram í lögunum að lögbundin hámarkseign hvers aðila sé 1.500 hektarar lands og fari kaupin yfir þetta hámark verði að leita eftir umsögn sveitarfélagsins varðandi kaupin.

Samkvæmt upplýsingum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu eiga Flaumur ehf. og tengdir aðilar 5.548 hektara lands fyrir þessi kaup. Stjórn Félags sauðfjárbænda í V-Hún gangrýnir það harðlega að einn aðili geti safnað að sér slíku ógrynni af landi enda verður illa skilið hvað einn aðili hefur að gera með svona mikið land.

Í tilfelli Núpsdalstungu er vitað um ungt fjölskyldufólk sem gerði tilraun í fullri alvöru til að kaupa jörðina með það í huga að setjast þar að og hefja þar búskap. Raunhæf tilboð, fjármögnuð að fullu, en voru nánast hundsuð af viðkomandi fasteignasala.

Jarðasafnarar sem eiga jarðir hér um slóðir virðast ekki vera mikið fyrir að hafa ljós í glugga á býlum sínum né að þar séu börn að leik.

Ef þessi kaup vera að veruleika athugasemdalaust er til lítils að koma með mótbárur við næstu kaup jarðasafnara þar sem þá verður komið fordæmi. Í jarðalögum kemur fram að fari jarðakaup yfir þetta hámark þurfi að fylgja með rökstuðningur varðandi það hvernig eigi að nytja jörðina. Ekki verður þó séð að nein viðurlög séu við því ef kaupandi stendur ekki við nýtingarhugmyndir sínar og er þetta ákvæði því hálf litlaust.

Stjórn Félags sauðfjárbænda í V-Hún skorar hér með á ráðherra að hafna þessum kaupum.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir