Mótmæla niðurskurði á fé til viðhalds varnargirðinga

Á fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vestra sem haldinn var um fjarfundarbúnað miðvikudaginn 6. maí síðastliðinn var tekið til umræðu ástand sauðfjárveikivarnagirðinga í sveitarfélaginu.

Í fundargerð kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá verktaka sem sér að stórum hluta um viðhald sauðfjárveikivarnagirðinga héraðsins, hefur honum verið tilkynnt að lækkun verði á fjárframlögum til viðhalds á varnargirðingum á árinu 2020. Verður það til þess að nauðsynlegt viðhald verður í lágmarki sem gerir að verkum að varnir gegn smitsjúkdómum búfjár verða illviðráðanlegar.

„Landbúnaðarráð Húnaþings vestra mótmælir harðlega þessari þróun og finnst skjóta skökku við að þetta sé gert eftir snjóþungan vetur og á sama tíma og umræða um smitsjúkdóma, matvælaöryggi og mikilvægi öruggrar matvælaframleiðslu er áberandi í heiminum og þá ekki síður í ljósi þess að stór hluti mannkyns hefur verið girtur af og hólfaður niður til varnar útbreiðslu smitsjúkdóma. Landbúnaðarráð hvetur Matvælastofnun að endurskoða fjárveitingar til varnargirðinga í Húnaþingi vestra,“ segir í fundargerð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir