Myndlist í Gúttó - FeykirTV
Listamenn Sólon myndlistarfélags hafa opna vinnustofuna sína í Gúttó alla laugardaga fram að jólum. Opið er frá kl. 13-17 þessa daga fyrir gesti og gangandi, vini og kunningja, þá sem vilja skoða/kaupa myndlist eða bara líta inn í kaffi og spjall. Einnig verður opið á Þorláksmessu frá kl. 17-21.
Er hópurinn sem samanstendur af skagfirskum listamönnum, bæði konum og körlum, með verk sín til sýnis og sölu. Feykir- TV kíkti í Gúttó og skoðaði verkin, fékk sér kaffi og spjallaði við þær Ingibjörgu Hafstað og Erlu Einarsdóttur sem sögðu frá tilurð félagsins og hvernig það kom til að Gúttó varð fyrir valinu sem vinnustofa.
http://www.youtube.com/watch?v=cMnM33vAmg4&feature=youtu.be