Myndskeið frá Mjallhvíti og dvergunum sjö

Mjallhvít og dvergarnir sjö, leiksýning nemenda í 10. bekk Árskóla, sem er til sýningar um þessar mundir í Félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki hefur vakið mikla lukku, eins og greint var frá á Feykir.is í gær. Að neðan er myndskeið Skottu Film frá sýningunni en eins og sjá má leggja nemendur skólans allt í sölurnar til að gera sýninguna sem glæsilegasta.