N listinn – Nýtt afl í Húnaþingi vestra
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Sveitarstjórnarkosningar
10.04.2014
kl. 11.28
N listinn, Nýtt afl í Húnaþingi vestra býður til málefnafundar í Félagsheimilinu Hvammstanga þriðjudagskvöldið 15. apríl nk. kl. 20:30. Í auglýsingu í nýjasta eintaki Sjónaukans hvetur listinn íbúa Húnaþings vestra til að mæta og taka þátt í hugmyndavinnu um þau viðfangsefni sem staðið er frammi fyrir sveitarfélaginu.
Frambjóðendur verða til staðar til að svara fyrirspurnum. „Vonumst til að sjá sem flesta á fundinum til að móta bjarta framtíð fyrir íbúa Húnaþings vestra á komandi árum,“ segir loks í auglýsingunni.
Framboðslistinn er eftirfarandi:
- Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Hvammstanga
- Stefán Einar Böðvarsson, Mýrum
- Elín Jóna Rósinberg, Hvammstanga
- Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Hvammstanga
- Magnús Eðvaldsson, Hvammstanga
- Gunnar Þorgeirsson, Fitjum
- Leó Örn Þorleifsson, Hvammstanga
- Guðrún Eik Skúladóttir, Tannstaðabakka
- Maríanna Eva Ragnarsdóttir, Stórhól
- Pétur R. Arnarsson, Hvammstanga
- Ingibjörg Jónsdóttir, Syðsta-Ósi
- Þórarinn Óli Rafnsson, Staðarbakka
- Ómar Eyjólfsson, Hvammstanga
- Sigrún B. Valdimarsdóttir, Dæli