Námsstyrkir úr Húnasjóði
Í ágúst sl. samþykkti byggðaráð Húnaþings vestra átta námsstyrkir úr Húnasjóði, og voru þær valdar úr þrettán umsóknum sem bárust í kjölfar auglýsingar. Afhending styrkjanna fór fram á Gauksmýri. Hver styrkþegi hlaut kr. 100.000.- úr sjóðnum.
Húnasjóður var stofnaður af Ásgeiri Magnússyni og Unni Ásmundsdóttur er ráku Alþýðuskólann á Hvammstanga 1913-1920. Markmið sjóðsins er að stuðla að fag- og endurmenntun íbúa sveitarfélagsins. Styrkir hafa verið veittir úr sjóðnum frá árinu 2001.
Samþykkt var að styrkja eftirtalda:
Aron Stefán Ólafsson, nemi í umhverfisskipulagi.
Guðrún Eik Skúladóttir, nemi í búvísindum.
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, nemi í íslensku með þjóðfræði sem aukagrein.
Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, nemi í grunnskólakennarafræðum.
Helga Rakel Arnardóttir, nemi í bókhaldi, viðurkenndur bókari.
Íris Rut Garðarsdóttir, nemi í sjúkraþjálfun..
Sonja Líndal Þórisdóttir, nemi í reiðkennslu og þjálfun.
Sverrir Jónsson, nemi í bílamálun.